Innlend mót

TKÍ greiðir aðildarfélagi sem heldur mót 50.000 krónur per keppnisdag, þ.e.a.s. 100.000 fyrir helgina.

TKÍ greiðir mat starfsmanna, skv. fyrirfram samþykktu starfsmannaplani, sem hefur verið ca. 50.000 +/- 5.000 krónur á hverju móti. Það er mikilvægt að vera með starfsmannaplanið á hreinu vegna þessa.

Ekki er tekið fram hvað hver starfsmaður fær að hámarki eða lágmarki, en reiknað er með hófsamri eyðslu. Hver mótshaldari skal setja skynsamleg og hófleg mörk að gefnu tilliti til þeirra veitinga sem að þau eru með í boði.

Dómarastörf og önnur störf á innlendum mótum

Mótanefnd, dómaranefnd og stjórn TKÍ munu setja saman reglur um greiðslur fyrir dómgæslu.

Aðstaða til landsliðsæfinga

Engar greiðslur eru inntar af hendi fyrir aðstöðu til landsliðsæfinga að svo stöddu.

Aðstaða fyrir svartabeltispróf

Engar greiðslur eru inntar af hendi fyrir aðstöðu fyrir svartabeltispróf að svo stöddu.

Styrkt erlend mót

TKÍ styrkir þá keppendur sem stjórnin samþykkir að senda fyrir hönd landsliðsins á NM, EM, HM og ÓL um allt að 50% af meðal ferða- og gistikostnaði keppenda á hverju móti.

TKÍ styrkir fararstjóra og aðstoðarlandsliðsþjálfara um 50% af ferða- og gistikostnaði, telji stjórn TKÍ þörf á að skipa slíka aðila fyrir ferðina. Ef aðstoðarlandsliðsþjálfari gegnir einnig hlutverki fararstjóri þá styrkir TKÍ viðkomandi um 100% af ferða- og gistikostnaði.

Keppnisgjöld á NM, EM, HM og ÓL eru greidd af TKÍ.

Önnur erlend mót

Engir styrkir eru veittir að öllu jöfnu fyrir önnur mót, s.s. hefðbundin G-mót. Við sérstakar aðstæður hefur stjórn TKÍ vikið frá þessari meginreglu, þá sérstaklega ef hún telur að halli um of á annað landsliðið á keppnisári.

Verðlaunafé

Engir styrkir eru inntir af hendi fyrir verðlaun á erlendum mótum að svo stöddu.

Starfsmenn

Landsliðsþjálfarar þiggja laun samkvæmt samningi. Einnig greiðir TKÍ fyrir hóflegan útlagðan kostnað aðila sem bjóða þeim út að borða á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur, að því gefnu að reikningar eru lagðir fram.