Í fyrsta sinn verður Taekwondo keppnisgrein á unglingalandsmóti UMFÍ.

Endilega minnið ykkar iðkendur á þennan viðburð og hvetjið sem flesta til að koma og taka þátt.  Unglingalandsmót er fyrir keppendur á aldrinum 11 til 18 ára

Keppni í taekwondo er á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina og því tilvalið að koma við á Selfossi og taka þátt í þessum viðburði.

Búist er við allt að 2.500 keppendum í hinum ýmsu keppnisgreinum en búist er við að allt að 15 til 20 þús gestum þessa helgina á Selfossi.

Nánari upplýsingar er að finna inni á heimasíðu UMFÍ  www.umfi.is