Meisam Rafiei stefnir á Olympíuleikana í Ríó 2016.
Meisam Rafiei landsliðsþjálfari hefur ákveðið að hætta
sem landliðsþjálfari frá og með áramótum 2014-2015.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Meisam
fengið styrk frá Olympíusamhjálpinni til þess að láta
draum sinn verða að veruleika og stefnir nú á
Olympíuleikana sem verða haldnir í Ríó 2016.
Sjá meðfylgjandi frétt: http://old.tki.is/?p=4968
Þetta eru gífulega miklir möguleikar sem að hann
er að fá og mun þetta vissulega hafa stór áhrif á
uppbyggingu Taekwondo á Íslandi.
Stjórn TKI þakkar honum fyrir frábær störf sem landsliðsþjálfara. Óskum við honum til hamingju með árangurinn sem að honum hefur hlotnast og hlökkum til að sjá hann á Olympíuleikunum í Ríó 2016.
Taekwondosamband Íslands