Íslandsmótið í bardaga verður haldið hjá Ármanni í Laugabóli, Skelli, laugardaginn 16. Mars. Húsið opnar kl 08:30. Fundur með dómurum, starfsmönnum og þjálfurum verður kl 9:30 og keppni hefst kl 10:00.
Skráning og greiðsla keppnisgjalda er til kl 23:59 laugardags 9. mars. Keppnisgjaldið er 2500 kr. Þjálfarar senda skráningar um iðkendur sýna í heilu lagi í meðfylgjandi skjali. Skráningar sendast á irunn@isb.is.
Keppnisgjöld skulu greidd inn á reikning 0303-26-6305 kennitala 630502-2840. Hvert félag greiðir í heilu lagi fyrir alla keppendur.
Reynt verður eftir fremsta megni að halda flokkum jöfnum miðað við kyn, aldur, þyngd og belti. Mótsstjórn er með viðmið fyrir alla flokka sem reynt verður að fylgja en mun þó ávallt vera háð skráningu. Ef sameina þarf munu tilkynningar vera sendar á þjálfara viðkomandi iðkenda.
Beltaflokkar
Reynt verður að hafa tvo beltaflokka. Annar flokkurinn að 5. geup (rauð rönd) og hinn flokkurinn rautt belti og hærra. Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka þrátt fyrir þessi viðmið ef hún telur þess þörf.
Aldursflokkarnir
Aldursflokkar eru eftirfarandi og miðast við fæðingarárið. Þeir sem verða 12 á árinu geta keppt. Þeir sem verða 15 á árinu geta valið hvort þeir keppi í barnaflokk eða Junior, Þeir sem verða 18 á árinu geta valið hvort þeir keppa í Junior eða Senior. Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka þrátt fyrir þessi viðmið ef hún telur þess þörf.
- Barnaflokkur 12-14 ára
- Junior 15-17 ára
- Senior 18+ ára
- Superior 30+ (núverandi og fyrrum landsliðsmenn munu keppa í senior flokki þrátt fyrir aldur)
Vigtun
Vigtun verður á föstudegi hjá Ármann í laugardal þann 15 mars kl 19:30-20:30. Ef keppendur komast ekki á þessum tíma er hægt að vigta sig fyrir kl 9:00 á keppnisdag (16 mars). ATH að allir keppendur verða að vigta sig inn fyrir mótið og ná sinni skráningarþyngd innan skekkjumarka.
Á staðnum verða seldar veitingar og drykkir og í hádegishlé verður seldur heitur matur
Varðandi dómara
Félög eru skyldug til að senda eftirtalinn fjölda dómara. Þau félög sem ekki senda dómara greiða sekt 5000 kr pr dómara sem vantar.
Samkvæmt keppendafjölda þessu skulu félög skrá að minnsta kosti dómara með eftirfarandi réttindi. Því fleiri dómarar því betur mun mótið ganga fyrir sig og því ekkert því til fyrirstöðu að skrá eins marga dómara og hægt er.
Vinsamlegast skráið dómarana í meðfylgjandi skjal og sendið á irunn@isb.is
Reglur og keppnisfyrirkomulag
Keppt verður með Daedo rafbrynjur. Keppendur þurfa að vera með sérstakar hlífar til að skynjarar í brynjunni geti gefið stig. Eitthvað af hlífum verður til láns á mótinu. En TKÍ selur þær einnig á 7.000 kr. Í flokkum þar sem eru 4 keppendur eða fleiri skal keppt um bronsverðlaunin. ATH að þessar reglur eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Hlífar
Keppendur þurfa að vera með eftirfarandi búnað í keppni:
- Hjálm
- Brynju (TKÍ útvegar brynjur)
- Ristarhlífar með skynjara (hægt verður að versla eða fá lánað á mótsstað)
- Sköflungshlífar
- Framhandleggshlífar
- Hanska
- Punghlíf (kk)
- Tannhlíf (allir keppendur í junior, senior og superior. Keppendur í barnaflokkum 12-14 ára þurfa ekki að vera með tannhlíf þótt það sé hvatt til þess).
Ef keppandi hefur ekki viðkomandi hlífar á sér fellur hann sjálfkrafa úr leik.
Stigagjöf
Gefin verða 1-4 stig fyrir eftirfarandi tækni
Eitt stig er gefið fyrir:
- Spark í brynju með löglegri tækni. Skynjari í brynju og ristarhlíf keppenda metur hvort höggið hafði verið nægilega fast og nákvæmt.
- Högg í brynju með löglegri tækni. Hornadómarar meta hvor höggið hafi verið nægilega fast og nákvæmt.
Tvö stig eru gefin fyrir:
- Snúningspark í brynju með löglegri tækni. Skynjari í brynju og ristarhlíf keppenda metur hvort höggið hafði verið nægilega fast og hornadómarar meta hvort um snúningsspark hafi verið að ræða og gefa þá aukastig fyrir viðkomandi tækni.
Þrjú stig eru gefin fyrir:
- Spark í höfuð með löglegri tækni. Hornadómarar meta hvor höggið hafi verið nægilega fast og nákvæmt. Höfuðsnerting er bönnuð í barnaflokki (12-14 ára) og í junior (15-17 ára) er ekki full höfuðsnerting.
Fjögur stig eru gefin fyrir:
- Snúningsspark í höfuð með löglegri tækni. Hornadómarar meta hvor höggið hafi verið nægilega fast og nákvæmt og hvort um snúningsspark hafi verið að ræða og gefa þá aukastig fyrir viðkomandi tækni. Höfuðsnerting er bönnuð í barnaflokki (12-14 ára) og í junior (15-17 ára) er ekki full höfuðsnerting.
Lengd bardaga
- Lengd bardaga í barnaflokkum (12-14) eru 2×2 min með 30 sek á milli lotna.
- Lengd bardaga í juniorflokkum (15-17) eru 3×2 min með 1 min á milli lotna.
- Lengd bardaga í senior (18+)- er 3×2 min með 1 min á milli lotna.
- Lengd bardaga í superior (30+)- er 3×1,5 min með 1 min á milli lotna
Ef annar keppandi er með 12 stiga mun áður en síðasta lota á að hefjast þá er ekki keppt síðustu lotuna og sigurvegari skal úrskurðaður. Einnig ef 12 stiga munur verður í síðust lotu bardagans þá skal bardagi stöðvaður.
Passi og keppnisleyfi
ATH að félög verða að vera skuldlaus við TKÍ fyrir starfsárið 2012. Keppendur þurfa að vera skráðir í félagakerfi ÍSÍ, Felix, eða annað viðurkennt skráningarkerfi og uppfylla aðrar kröfur ÍSÍ um keppni. Keppendur skulu mæta með TKÍ passann sinn. Þeir sem hafa ekki sótt passann sinn ennþá geta fengið hann hjá TKÍ á mótinu.